top of page

WORKSHOPS

NÁMSKEIÐ

Screenshot 2026-02-22 at 8.42.02 PM.png
Screenshot 2026-02-22 at 8.44.37 PM.png

FÓKUSING NÁMSKEIÐ
LEVEL l og ll 

8 skipti x 120 mín 

Líkaminn veit meira um aðstæður en við gerum okkur grein fyrir. Með þjálfun getum við fengið betri tilfinningu fyrir því hvað líkaminn er að segja okkur. Þessi aukna meðvitund getur gert okkur móttækilegri fyrir nýjum og skapandi lausnum. sem koma okkur sjálfum á óvart.   Á námskeiðinu kennir Helga Fókusing aðferðina sem veitir beinan aðgang að þekkingu líkamans og eflir þannig innsæi og sjálfsþekkingu. Þessi aðferð var þróuð af heimspekingnum og sálfræðingnum Eugene Gendlin. Hann notaði orðið Fókusing sem myndlíkingu fyrir ferlið sem á sér stað þegar óljós líkamsskynjun eða skynfinning verður smátt og smátt skýrari og  auðþekkjanlegari þegar við beinum athygli að henni. 

Ef þú vilt fá frekari upplýsingar sendu póst HÉR

Helga.dyrum.leir.squarejpg.jpg

FÓKUSING 
EINSTAKLINGS TÍMAR

Í þessum tímum leiðir Helga þig í gegnum Fókusing ferlið sem byggir á því að :

TENGJA INN – Að færa meðvitund inn í líkamann.

MYNDA SAMBAND – Komast í samband við eitthvað innra með sér.

DÝPKA SAMBANDIÐ - Að gefa sér tíma til að dvelja með einhverju sem vill fá athygli þína og veita því tækifæri til að verða skýrara. Að leyfa orðum, myndlíkingum eða táknum að koma fram sem passa við þessi hughrif og segja meira um hvað þetta er sem þú skynjar.

AÐ KOMA ÚT – að taka nægan tíma til að rifja upp hvað kom til þín í ferlinu og hvað þig langar að taka með þér. Þetta gerir þér kleift að byggja upp langtímasamband við þína innri upplifun, sem gerir fókusing ferlið dýpra og hjálpar því að þróast með tímanum. Þetta stig er brú milli innri hlustunar og daglegs lífs. 

 

Þessi tími er innifalinn í FÓKUSING NÁMSKEIÐ LEVEL l og LEVEL ll ef þú ákveður að þú viljir halda áfram og læra Fókusing.

60 min - 16.000kr.

Helga.dyrum.leir.squarejpg.jpg
20250826_145312.jpg

LEIRVITUND   
EINSTAKLINGS TÍMAR

60 min - 16.000kr.

Einstaklingstímar í LEIRVITUND innihalda snertingu við leirinn, einfaldar æfingar og leiðsögn í líkamlegri athygli til að opna fyrir innri skynjun og sjálfsmeðvitund í gegnum leirinn.

 

Ef þú vilt láta brenna það sem þú býrð til þá kostar það 1000kr fyrir hvert stykki

LEIRVITUND - PÖR EÐA VINAHÓPAR

Stuttar vinnustofur fyrir pör, vini eða vinahópa sem sameina snertingu við leirinn, samvinnu í pörum, einfaldar fókusing‑æfingar og leiðsögn í líkamlegri athygli til að opna fyrir innri skynjun og sjálfsmeðvitund í gegnum leirinn.

 

Ef þú vilt láta brenna það sem þú býrð til þá kostar það 1000kr fyrir hvert stykki

( max. 6 manns) 90 min - 12.000kr á mann

Glavini 3.jpg

LEIRMÓTUN
& LEIRVITUND

​Helga býður uppá stutt námskeið þar sem hún kennir ekki aðeins að móta og glerja fallega muni 

heldur aðferðir við að opna dyr að dýpri tengingu við okkur sjálf í gegnum leirinn.
Leirinn kennir okkur þolinmæði, núvitund og snertingu við það sem býr innra með okkur.

Í námskeiðinu felst:

  • Mótun á einstaklingsbundnum leirmunum

  • Glerjun og undirbúningur fyrir brennslu

  • Leiðsögn í leirvitund – að skapa með nærveru og tengjast sjálfum sér í gegnum leirinn

Praktísk atriði:

  • Námskeiðið stendur yfir í 3 skipti, hvert skipti 3 tímar

  • Hámark 6 þátttakendur – sem tryggir persónulega leiðsögn og rými til að njóta ferlisins

  • Innifalið er allur efniskostnaður: leir, glerungur, brennsla og leiðsögn

Hafðu samband til að vita meira um næstu námskeið.

kula.jpg
Glavini 3.jpg
20250826_145312.jpg
7.jpg-klippt.jpg

GET EXCLUSIVE OFFERS AND UPDATES

Contact us

Helga@tiufingur.is

tel. +354 8953020

Opening hours by appointment

20251208_124659_edited_edited.jpg

®all rights reserved Helga Arnalds -  RIGHTS AND DISCLAIMER ©2025 all Photographs on this site are the exclusive property of  Helga Arnalds and protected under international copyright laws. Photographs are not to be downloaded, reproduced, copied, stored, manipulated, projected, used or altered in any way, alone or with any other material, or by use of computer or other electronic means without the express written permission of Helga Arnalds.

This site is not responsible for the content of any linked external websites.

IMPRESSUMV.a.i.S.d.M.Helga Arnalds

bottom of page